Auglýsing

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

LÁMARKSLAUN.

24. maí 2007 klukkan 06:38

Eg hef offt velt því fyrir mér hvað laun hja almennu starfsfólki þurfi að vera
svo hægt sé að lifa af þeim þokkalegu lífi.
Eg hef líka velt því fyrir mér hva'ð er bruðl og hvað ekki bruðl.
GAMAN Væri að fá álit  hjá fólki sem spáir í þessa hluti.
Með ljúfri kveðju BÓTHILDUR.

GETUR ÞAÐ VERIÐ.

23. maí 2007 klukkan 07:05

GETUR ÞAÐ VERIÐ AÐ EKKERT VERÐI GERT TIL AÐ ÞAKKA KÁRA SNORRA OG
FRÚ ÞAÐ SEM ÞAU HAFA GERT Í ATVINNUMÁLUM,HÉR Á ÞESSUM STAÐ ÁÐUR EN ÞAU FARA HÉÐAN ALFARIN. ÞAÐ HEFUR NÚ STUNDUM VERIÐ HALDIN VEISLA AF MINNA TILEFNI.
eN ÞAÐ SKAL TEKIÐ FRAM AÐ ÞETTA ERU BARA MÍNAR HURENNINGAR.
EN ÞARNA BYRJUÐU NÚ 3 AF MÍNUM BÖRNUM SÍNA FYRSTU VINNU OG SUM UNNU LENGI Í SÆRÚNU
MEÐ LJÚFRI KVEÐJU BÓTHILDUR.

Bráðum kemur betri tíð.

22. maí 2007 klukkan 06:45
Og ekki veitir af . Sennilega er best að vera bara í síngjandi sveiflu meðan
hvítu kornin falla. Eg hef verið spurð hvort ekki verði markaður bráðum.
Get bara ekki svarað þessu. Það er Ingibjörg Kristjans sem veit meira
um þau mál. Með ljúfri kveðju. Bóthildur.

Allt gott

14. maí 2007 klukkan 06:55

Mikið meigum við vera glöð að hafa svona fjársterkan aðila á okkar góða
stað Blönduós. En þá á eg við eiganda Hótelsins á vesturbakkanum.
Við höfum stundum verið að tala um nágranna okkar sem hafa Balta og frú.
og fá frítt í bíó og fleira. EN  braðum kemur betri tíð með blóm í haga  hjá

okkur líka Eg var bara búin að gleima að hér væri Hótel.
Með ljúfri kveðju Bóthildur.






Ekki gott.

04. maí 2007 klukkan 22:50
Eg er að fatta að eg hef ekki sett neitt á þessa síðu síðan í Mars. Það er alls ekki gott. Eg vil samt þakka þeim sem líta við hjá mér á þessari síðu. Mínar hugleiðingar þennan mánuð eru auðvitað kostningar sem eru á næstu grösum og allir ætla að gera bókstaflega allt fyrir okkur, en þá meina eg auðvitað þá sem eru í framboði. Mikið verður gaman eftir kostningar þegar öll loforðin verða að veruleika. Eg hef reindar furðað mig á einu. Af hverju er ekki bara höfð símakostning eins og í Júroveseninu og hinu öllu hvað sem það nú heitir, og miklu minna vesen. En þetta er nú bara mín skoðun. Með ljúfri kveðju Bóthildur.

Gott að búa á Blönduós.

30. mars 2007 klukkan 20:08
Eg fer ekki offt í höfuðborgina, þar sem allt er svo gott. En um daginn brá eg mér í rokið og rigninguna þar. Auðvitað fór eg í búðir þá loks að þær opnuðu sem var svona undir hádegi á laugardegi Misjöfn var nú þjónustan allt frá því að vera sæmileg og niður í ekki neina. Margt af þessu fólki var mjög upptekið við að tyggja í akkorði, trulega þar til gert gúmí. Mikið var eg fegin að muntóbak er ekki lengur á boðstólnum. Það hefði orðið þokkalegt. En ætli þetta sama fólk vilji svona þjónustu ef það væri á ferð hér. Reindar fór eg í fermingjar- veislu í Fjörukrána í Hafnarfyrði og það var frábært, bæði þjónusta og allt sem þar var fram borið og þangað væri eg til í að fara aftur. Em mikið var nú gott að koma aftur á minn gamla goða Blönduós Með ljúfri kveðju Bóthildur

Til óbóta.

13. mars 2007 klukkan 18:19
Nú hef eg setið og þvælst um netið mér til óbóta, komin með höfuðverk og slæm í augum Aðalega hef eg verið að bíða eftir að Nöldri setti nöldur á Húnahornið því maður er orðin svo vanafastur að án Nöldra er mánuðurinn ekki sá sami, svo kostar það bara að eg fer að nöldra útaf Nöldra. Þetta er náttúrlega bilun. Með ljúfri kveðju Bóthildur.

Listaverk.

08. mars 2007 klukkan 21:24
Kæri Jón. Mikið þakka eg falleg orð í minn garð. Það er alltaf gaman að sjá nafnið sitt á prenti því offtast er það á einhverjum rukkunarsneplum. Eins og þú veist Jón minn, þá var löngu orðið tímabært að flitja sig um set úr úthverfinu í sjálfa menninguna, og þó eg saknaði ykkar Möggu og Löggu. Þá sá eg fljótlega að útum gluggann minn sé eg þakið á húsinu ykkar Möggu og beint inn til Löggu, Hún er bara aðeins nær almættinu en eg. Nú þá er er það listaverkið. Eg er nú bara svo heppin að vera eitt af listaverkum þínum, því eins og allir vita átt þú ótal listaverk bæði í myndum máli og tónum. Já kæri Jón Þinn tími mun koma. Með ljúfri kveðju. Bóthildur. (Bóta)

Loksins.

22. febrúar 2007 klukkan 17:04
Loksins er maður að vakna af dvala, Enda sól hátt á lofti. Vil byrja á að þakka þeim sem kusu mig í þriðja sæti sem maður ársins, Náði samt ekki af hverju eg.... Ekki er nú mikið um að vera í okkar blessaða bæjarfélagi, ef þetta er úrvalið. Ekki má miskilja þessi orð mín sem svo að eg hafi á móti þeim sem kosnir voru En þetta segir mér allavega að hér mætti vera meira um að vera og það er held eg okkar´sjálfra að sjá til þess. og koma þessu bæjarfélagi á kortið. En nóg um það að sinni. Nú eiga flestir hlutir að fara að lækka í verði og spennandi að sjá þá útkomu. Nú þó það sé ekki fréttnæmnt þá fjárfestum við hjón í GSmsíma nú fyrir jólin. En þessi símakaup urðu að mikilli sögu sem eg mun segja frá á næstu dögum. Með ljúfri kveðju Bóthildur.

Þegar Stúfur fór í bíltúr.

31. desember 2006 klukkan 22:42
Eitt sinn þegar Stúfur var orðin leiður á að labba allar sínar mörgu ferðir, spurði hann Kertasníkir. hvort það væri séns að taka bílpróf svo hann þirfti ekki alltaf að labba. Kertasníkir sagði að það mætti reina, en hann irði að vera duglegur að læra, sjálfur skildi hann redda bíl. svo mundu þeir byrja daginn eftir. Stúfur sofnaði næstum ekkert því hann hlakkaði svo til. Þegar hann loksins sofnaði söng hann bibbí í svefni og dreymdi bíla. Daginn eftir vakti Kertasníkir hann og sagði, ertu til í fjörið. Stúfur hlunkaðist fram úr rúminu og sagði síðan, Haha, núna í dag, Ertu kanski hættur við spurði Kértasníkir. nei nei, auðvitað ekki. sagði Stúfur. Nú þá byrjum við sagði Kértasníkir. Þeir fóru út í bílinn sem Kertasníkir útvegaði. Jæja snúðu þessu og íttu á þetta, sagðí Kertasníkir. jess sagði Stúfur og all í einu voru þeir komnir á fulla ferð að keira niður ljósastaura. Kertasníkir var búin að telja fimmtán, þegar Pottaskéfill stoppaði þá og sagði. Viljið þið snauta heim áður en löggan kemur og setur ikkur í fangelsi. þið eruð nú ljótu óþektarangarnir. Stúfur og Kertasníkir fóru skömmustulegir heim. Gleðileg jól. Iris Emma og Maggý Björg.

Könnun

HVAÐ ÞURFA MEÐALLAUN ófaglærðs VERKAFÓLKS AÐ VERA.